⭐ Verkefni · Baukur · Óskalisti · Ég

Verkefnin mín. Peningurinn minn. Óskalistinn minn.

Dugur er appið sem börn nota sjálf til að klára heimilisverkin sín. Þau safna sér vasapening fyrir það sem þau langar í og sjá framfarirnar sínar skýrt og sjónrænt, svo verkin verða skemmtilegri.

Skráðu netfangið þitt hér og þú færð boð í appið sent í tölvupósti um leið, frítt í beta. 👇

Engar auglýsingar. Bara jákvæð rútína, ábyrgð og peningavit fyrir börn.
🧒 Barnið merkir sjálft við verkefnin sem klárast
🪙 Vasapeningur verður sýnilegur
🎯 Óskalistinn verður að markmiði
Hannað fyrir barnið

Fjórir einfaldir hlutir sem barnið skilur strax

Dugur app er byggt í kringum upplifun barnsins: hvað þarf ég að gera, hvað á ég mikið af pening, hverju er ég að safna fyrir og hvernig standa peningamálin? Um leið er þetta tilraun til að kenna þeim peningavit frá unga aldri.

Verkefni

Dagleg verkefni, aukaverkefni og vikuyfirlit. Barnið sér nákvæmlega hvað er búið og hvað er eftir.

🪙

Peningar

Vasapeningurinn safnast sýnilega á einum stað. Hvert verkefni fær verðmæti, svo barnið lærir að vinna sér inn, geyma og halda utan um sitt.

🎯

Óskalisti

Það sem barnið langar í verður markmið. Óskalistinn breytir peningum í eitthvað raunverulegt.

🧢

Ég

Barnið velur sér liti og stíl svo appið verði þeirra eigið. Þetta er ekki verkefnalisti foreldrisins, heldur app sem barninu finnst gaman að opna.

Óskir verða að markmiðum

Það sem þig langar í verður að markmiði

Barnið bætir við ósk, sér hvað það á langt í land, og merkir svo þegar draumurinn er keyptur. Hvert klárað verkefni færir það nær því að ná settu markmiði.

1 · Bæta við ósk
🛹 Hjólabretti
Skráðu það sem þig langar í og hvað það kostar.
2 · Safna fyrir
🛹
HjólabrettiMarkmiðið mitt
9.990 kr
Vantar 3.200 kr · 68%
3 · Merkja keypt
🛹
HjólabrettiMarkmiði náð! 🎉
✅ Ég keypti þetta!
Af hverju Dugur virkar

Heimilisverkin verða skemmtileg þegar ávinningurinn er skýr og sýnilegur

Dugur setur barnið í fyrsta sæti. Það sér verkefnin sín, fær sinn eigin litla heimabanka, fylgist með framförum og finnur að þetta tengist einhverju sem skiptir það máli.

Verkefni verða skýr, afmörkuð og auðveld að haka við.
Vasapeningur verður ekki bara tala, heldur eitthvað sem barnið vinnur sér inn, geymir og fylgist með.
Foreldrar þurfa minna að ýta á eftir verkunum, þótt appið sé fyrst og fremst fyrir barnið.
🛹
HjólabrettiÓskin mín
9.990 kr
Vantar 3.200 kr · 68%
Stjarna ⭐ Fótbolti ⚽ Geimari 🚀 Tónlist 🎵

Viltu prófa Dug með þínu barni?

Skráðu netfangið þitt og boðið kemur um leið í tölvupósti. Fyrir börn sem vilja gera heimilisverkin skemmtileg, og foreldra sem vilja kenna þeim peningavit á jákvæðan hátt.

Engar auglýsingar. Boðið kemur um leið í pósthólfið þitt.